A.J.

Sweet Virginia

09.05.2007 00:22:38 / Andri

09/05/89

 

Jebb þá er stundin sem þið hafið öll verið að bíða eftir runnin upp, eitt af óskabörnum þjóðarinnar er kominn á fullorðinsaldurinn.

Já þið lásuð rétt, dáðadrengurinn er orðinn fjár og sjálfráða og eru mér engin takmörk sett nema himininn sjálfur. 

 Allar gjafir eru þáðar með þökkum jafnt sem heillarkveðjuskeyti.

 

Sjáumst í komandi og bjartri framtíð, kær kveðja Andri Jón Sigurbjörnsson.


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 15:03:41 / Andri

Pose - Justin Timberlake feat. Snoop Dog

 

Daginn

Er heima hjá Árdísi en hún er einmit að gera sig reddy fyrir árhátíð MS sem er í kvöld, verður örugglega mjög gaman þar...ballið lokað þannig að maður kemst víst ekki með.

En hinsvegar er ég að fara á eitthvað sem ég held að sé einhver mesta skemmtun sem ég get ímyndað mér, en hann Árni okkar Gests er að fara að taka þátt í svona djúpulaugaratriði í kvöld uppí MK og hvet ég ALLA til að koma og mæta uppí MK klukkan 8 í kvöld.

Þar munu 3 stelpur keppa um hilli Árna og mun ein mjög heppin stúlka sem hann velur fara með honum út að borða og hafa það kósý.

En og aftur ALLIR að mæta og hvetja drenginn til dáða!!

Sé ykkur þar

Andri J

Árni Heitur með Conan-pósu


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 15:58:13 / Andri

Rocket Fuel - Brain Police

Jæja, langt síðan ég bloggaði síðast og vel liðið á árið.

Langaði bara að koma nokkrum hugsunum mínum á framfæri:

1. Hversu léleg var dómgæslan í leiknum á móti Póllandi ?

2. Ætli það sé einhversstaðar í heiminum leiðinnlegra veðurfar en á Íslandi ?

3. Gætu stjórnendur afrekshóps GR verið meiri fávitar ?

4. Hversu pirrandi er hálka ?

5. Peningavandamál...það versta í heimi ?

6. Íslendigar, verðandi heimsmeistarar í handbolta ??


Þetta  var nú allt og sumt..hvet alla til að horfa á leikinn á eftir og styðja drengina.

Þangaði til næst, A.J.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 01:16:41 / Andri

Gleðileg jól

Gleðileg jol og takk fyrir það allt liðna á árinu..

kv. Andri Jón


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 18:15:41 / Andri

I have a dream - Common

Daginn og takk fyrir síðast þeir sem voru á Verzlóballinu, án efa eitt það albesta ball sem ég hef lent í og ekki voru partýin hjá Gestsyninum verri.

Annars var að ég hofra á mesta viðbjóð sem ég hef séð, Everton vs. Chelsea, Lundúnaliðið rétt marði Karmellurnar frá Liverpool með 3 mörkum gegn 2, algjörlega óverðskuldaður sigur, hef aldrei séð jafn mikla  heppni eins og þessi 2 síðustu mörku Chelsea, falleg á að horfa...en samt ekkert nema heppni.

Var í skírn fyrr í dag og lennti þar í því skemmtilega atviki að það var skírður drengur í höfuðið á mér :D 8) Iljaði mér rækilega um hjartarætur,  kom sér vel í skammdeginu...veit svosem ekki hvort þetta var beint í höfuðið á mér, en hann heitir allavega Andri ;) Myndar-drengur, fylgir nafninu.

En þangað til næst...Big A


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 02:45:14 / Andri

Ghost Writer - RJD2

yo

Búinn að hanga of mikið í tölvunni þannig að ég fékk allt í einu þessa "snilldar" hugmynd....hvernig væri að byrja að blogga aftur :klikk:

Veit ekki hvort þetta sé nú svo mikil snilldar hugmynd, en það verður tíminn að leiða í ljós

En hér með opnast allavega b.c.is/aj formlega aftur

Vonandi verð hvorki sjálfum mér né öðrum til skammar

Detta kannski inn myndir



Greinilegt að ghettoskólinn bar sigur úr bítum að þessu sinni enda sveik þessi árshátíð engann...

Kappinn á Busaballi FÁ

-Andri Konsum


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 22:35:18 / Andri

Placebo - English Summer Rain

Jæja, það hlaut að koma að þessu...

www.blog.central.is/aj er hér með formlega dáin

Mér datt í hug að koma með svona "fynnst ykkur að ég ætti að halda árfam með síðuna?" blogg en áttaði mig fljótlega á því að það myndi líklega enginn svara þannig að ég hef ákveðið að taka þessa ákvörðun bara sjálfur og binda enda á þessa síðu

Þessi síða átti sín moment en þau voru nú ekki mörg

Hugsanlega byrja ég aftur á henni, efa það samt stórlega

Takk fyrir mig þið sem nenntuð að lesa þessi örfáu blogg mín

Megi ykkur vegna vel í framtíðinni

Fyrir hönd síðunnar þá ætla ég að kveðja

Hvet alla til að tékka á www.blog.central.is/conan

Andri Jón Sigurbjörnsson fyrrum sólóbloggari :cry:


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 14:48:16 / Andri

Pendulum - Slam

Jæja gott fólk

Ég hef ákveðið að hætta ekki alveg með þessa síðu þó svo að hin undurfagara og frabæara Conansíða sé komin í loftið (www.blog.central.is/conan)

Síðustu dagar eru búnir að vera annasamir og skemmtilegir ;):p

Var að vinna eins og þræll um helgina með Árna og Bix í eitthverri hardcore byggingarvinnu þar sem við vorum að rífa eitthver járnstykki útúr steypuvegg :| ofsahardcore

En svo var líka kíktí í partý og svona á föstudeginum en þar sem þetta var svo öömurlegt partý þá var bara haldið heim til árna og skemmt sér þar langt fram á nótt :P

Á laugardeginum var maður vel þreyttur eftir vinnuna og hvað er þá betra en að fá hana Árdísi í heimsókn :D hún kom til mín um kvöldið og kíkti thelma líka og höfðum við það bara kósý, ég að horfa á Gladiator og þær Madagascar :P

Svo á Sunnudaginn þá svaf maður bara veel út, chillaði allan daginn og fór svo á ísrúnt um kvöldið :D

En það var nú lítið meira sem ég vildi segja hér, hvet alla eindregið til að kíkja á www.blog.central.is/conan

Þangað til næst...Andri ;):D 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 23:54:36 / Andri

2Pac - Dear Mama

hahahah varð að skella þessari mynd hérna inná, ég og árdís að pósa á FÁ árshátíðinni, njótið ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 00:05:43 / Andri

Arnold Schwarzenegger

Hestasterar ?

Og hérna ein fyrir þá sem eru ekki alveg með á nótunum og reka upp stór augu þegar þeir sjá okkur félagana gera "Conan-pósuna" en þarna er Arnold Schwarzenegger að gera garðinn frægan í Conan The Barbarian

Sýnidæmi

hvað ?

Bara svona til að það verði enginn misskilningur né önnur leiðinndi

Takk, Andri J


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 14:00:02 / Andri

Heaven Beside You - Alice In Chains

Góðan dag

Jæja best að blogga, þó svo að ég sé ekki alveg í þessum rétta bloggfýling, ég er búinn að vera að bíða eftir að detta í bloggstuðið en komst að þeirri niðurstöðu að það er líklega ekkert að fara að gerast, ég er ekki þessi bloggaratýpa held ég...en samt sem áður ætla ég að hnipra niður nokkur vel valin orð hérna bara til að skemmta ykkur kæru síðugestir.

Maður bara búinn að vera veikur síðustu daga, hiti og meðfylgjandi skítur, er meira að segja en hálf slappur en af því að ég er hörkutól mikið, þá fór ég í skólan í dag 8) Komst þar að því að hinir margrómuðu Árdagar eru í næstu viku, en það eru svona dagar þar sem maður fær bara að velja hvað maður gerir, ekki slæmt það...ég valdi dj-námskeið á þriðjudaginn, Grænn kostur (svona heilsumatsnámskeið) Afródans og brettanámskeið á miðvikudaginn og svo Bindishnútanámskeið og "HM í fótbolta í Þýskalandi í sumar"á fimmtudaginn, hljómar vel, right? :P

Þannig að eftir næstu viku getið þið hóað í mig til að, vera DJ, elda hollan mat, dansað afródans, sk8t-að 8), bundið bindishnút eða sagt ykkur allt um HM í Þýskalandi, ekki amarlegt.

Svo er bara salapartý í Loftkastalanum í kvöld og jafnvel hitað upp í Póker heima hjá Lurknum.

En vona að þið getið haft gaman af þessu bloggi mínu, þangað til næst

Andri Jón Sigurbjörnsson  




» 5 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 11:38:20 / Andri

Foo Fighters - Everlong

Heimsmet?

Jæja, ég er líklega bráðum að verða búinn að setja heimsmet í leti en ég er ekki búinn að blogga síðan um jólin eða eitthvað 8| en nú verður breyting þar á ;)

Margt er búið að gerast síðan við skildum síðast og ber þar hæðst að nefna að ég er búinn að skipta um skóla og er kominn í hinn feikivinsæla og stórgóða Fjölbrautarskóla við Ármúla, hann er ágætur þó svo að ég myndi heldur kjósa að vera í Verzló, en svona er þetta...lífið er ekki dans á rósum ;)

Þess má einnig til gamans geta að ég er einmitt uppí FÁ núna af því að það er ekkert internet í nýju flottu tölvunni minni, og er það skýringin á því af hverju ég er ekki búinn að blogga shit.

En mig langaði bara svona að sýna að ég væri ekki dauður, farinn í tíma

Later :klikk:


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 00:14:25 / Andri

Nýtt ár

Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár kæru gestir

Takk fyrir allt það gamla á liðnu ári


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 14:21:56 / Andri

Wonderful Christmastime (8)

Ójá, þá er hið langþráða jólafrí runnið upp :D

Ég er strax búinn að reyna að nýta það útí ystu æsar og er búinn að sofa síðan ég kom heim ;) og svo er ég að fara á löðrandi sveitt jólaball í kvöld, en ekki nóg með það heldur verður líka enn sveittara fyrirpartý með DJ og læti, skilst manni að 1/6 af ballinu verði þarna samankominn, ekki amarlegt það.

Langaði bara að deila þessu með ykkur :D

Svo kemur líklega eitthvað blogg um hvernig ballið var ;)

Kv. JólaAndri ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 01:07:43 / Andri

Cypress Hill - Can't Get The Best Of Me

Jæja mér voru að berast mikil tíðindi en mér var sagt að tvífari minn væri fundinn, http://idol.visir.is/?PageID=752  dæmi nú hver fyrir sig...ég er allavega ekki frá því að við séum bara keimlíkir :$ endilega tékkið á þessu

Later...A.J. :P


» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3